20.03.1958
Neðri deild: 69. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 751 í B-deild Alþingistíðinda. (674)

125. mál, vátryggingarfélag fyrir fiskiskip

Frsm. (Gísli Guðmundsson):

Herra forseti. Ég vil aðeins leyfa mér að gera grein fyrir brtt. á þskj. 328, sem flutt er af sjútvn. Það er brtt. við 7. gr. varðandi gildistöku þeirra ákvæða, sem þar er um að ræða, að í staðinn fyrir 1. marz komi 15. apríl. Við höfum gert þessa brtt. í samráði við atvmrn., vegna þess að gera má ráð fyrir, að afgreiðsla frv. geti dregizt enn nokkurn tíma, þar sem það á eftir að fara í gegnum hv. Ed.