05.11.1957
Neðri deild: 17. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í B-deild Alþingistíðinda. (72)

5. mál, tollskrá o. fl

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Þetta frv. fjallar um framlengingu á viðaukum á nokkra tolla og nokkur gjöld, enn fremur um heimildir til þess að undanþiggja nokkrar vörur tilteknum gjöldum. Þessu er öllu hagað á sömu lund í frv. og á sér stað á yfirstandandi ári.

Þetta frv. hefur farið ágreiningslaust í gegnum Ed. Ég leyfi mér að leggja til, að því verði vísað til hv. fjhn. að lokinni þessari 1. umr.