17.04.1959
Neðri deild: 110. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1216 í B-deild Alþingistíðinda. (1105)

124. mál, almannatryggingar

Frsm. (Kjartan J. Jóhannsson):

Þetta mál er komið frá Ed., var flutt þar að beiðni Læknafélags Íslands. Tryggingastofnun ríkisins hefur tjáð sig samþykka þessari afgreiðslu málsins, þar sem þetta er til samræmis, — þar sem aðstæður á öðru verðlagssvæði eru eins og á fyrsta verðlagssvæði, þá skuli heimilt að láta þessa reglu í b-lið 52. gr. gilda einnig á öðru verðlagsvæði, ef sjúkrasamlagið á hlutaðeigandi stað og tryggingaráð samþykkja. N. mælir með, að þetta verði samþykkt.