21.04.1959
Efri deild: 105. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1699 í B-deild Alþingistíðinda. (1270)

146. mál, sýsluvegasjóðir

Sigurður Ó. Ólafsson:

Herra forseti. Ég vil í tilefni af þessu, sem fram kom núna síðast frá hv. þm. Seyðf. (BjörgJ) segja það, að ég mun ekki taka till. aftur til 3. umr. Ef umr. um málið verður fram haldið núna, þá mun ég halda þá ræðu um málið, sem ég hafði hugsað mér að gera.