27.04.1959
Neðri deild: 117. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1714 í B-deild Alþingistíðinda. (1281)

146. mál, sýsluvegasjóðir

Frsm. (Páll Þorsteinsson):

Herra forseti. Við 1. umr. þessa máls var gerð grein fyrir því, hvaða ástæður liggja til þess, að frv. þetta er flutt.

Samgmn. hefur athugað málið og orðið ásátt um að leggja til, að frv. verði samþ. með lítils háttar orðalagsbreytingu við 2. gr., eins og sjá má í nál. á þskj. 467.