13.11.1958
Neðri deild: 21. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í B-deild Alþingistíðinda. (14)

40. mál, þingsköp Alþingis

Frsm. meiri hl. ( Gísli Guðmundsson):

Herra forseti. Allshn. hefur athugað frv. og borið það saman við gildandi lög um þingsköp Alþingis. Meiri hl. n. mælir með því, að það verði samþ. óbreytt. Minni hl. mun ekki vera því andvígur, en hefur skilað sérstöku nál. Nál. eru á þskj. 70 og 72. Að öðru leyti get ég látið mér nægja að vísa til nál. á þskj. 70.