13.11.1958
Neðri deild: 21. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í B-deild Alþingistíðinda. (15)

40. mál, þingsköp Alþingis

Frsm. minni hl. (Ingólfur Jónsson):

Með vísun til umræðna hér á Alþingi í dag og að stjórnarflokkarnir telja nauðsyn bera til, að málið nái fram að ganga nú þegar, vilja sjálfstæðismenn ekki tefja fyrir því og mun ég því ekki halda neina framsöguræðu um málið, en vísa til nál. á þskj. 72.