07.01.1959
Sameinað þing: 19. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 21 í D-deild Alþingistíðinda. (1868)
36. mál, niðursuðuverksmiðja á Akureyri
Frsm. (Áki Jakobsson):
Herra forseti. Fjvn. hefur haft till. þessa til athugunar og sent hana til umsagnar til Fiskifélags Íslands og fiskideildar atvinnudeildar háskólans, og eru umsagnir beggja þessara stofnana jákvæðar. Þó er bent á það í umsögn fiskideildar atvinnudeildar háskólans, að svo kunni að vera, að þarna gæti verið um ofveiði að ræða. Þó telur hún það ekki vera svo þung rök, að ástæða sé til þess að vera á móti, að þessi athugun fari fram, og n. hefur til þess að koma til móts við skoðanir fiskideildarinnar lagt til, að till. verði samþ. með þeirri breyt. eða viðauka, sem felst í nál. á þskj. 146 og fjallar um að bæta aftan við tillgr. þessari setningu: „Þá skal hún einnig hafa samráð við fiskideild atvinnudeildar háskólans um vinnslugetu verksmiðjunnar.“ Þarna er sem sagt eingöngu bent á þetta fyrir n., sem væntanlega verður skipuð til þess að athuga þetta, og þá með það fyrir augum, að ekki verði um að ræða ofveiði á þeirri smásíld, sem þarna er um að ræða í Eyjafirði.
Ég vil taka það fram, að ég tel, að það sé ekki mikil hætta á því, að um neina slíka ofveiði verði að ræða, þegar um það er að ræða að veiða til niðursuðu eða niðurlagningar, vegna þess að það er ekki svo mikið magn, sem til þess þarf að hafa allmikla starfsemi í þá átt, sem mundi geta orðið dýrmæt útflutningsvara, ef vel tækist, og veita mikla atvinnu og þá helzt í þann tíma, sem það skipti mjög miklu máli á Akureyri og við Eyjafjörð að auka atvinnuna.
N. er sem sagt sammála um að mæla með samþykkt till. óbreyttrar að viðbættri þessari setningu, sem ég las upp.