14.05.1959
Sameinað þing: 52. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 137 í D-deild Alþingistíðinda. (2034)

171. mál, viti á Geirfugladrangi

Á 52. fundi í Sþ., 14. maí, áður en gengið væri til dagskrár, mælti forseti (JPálm):

Mér hefur borizt svo hljóðandi áskorun:

„Við undirritaðir óskum eftir, að till. til þál. um að reisa vita á Geirfugladrangi, þskj. 513, verði tekin til umræðu og afgreiðslu á þessum fundi.“

Og undirskrifaðir níu menn.

Ég vil með tilliti til þess, að það verði engar umræður um þessa till., bera undir atkvæði, hvort það sé samþykkt að bæta þessari till. á dagskrána.