29.10.1958
Sameinað þing: 6. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 154 í D-deild Alþingistíðinda. (2053)
7. mál, innflutningur varahluta í vélar
Gunnar Thoroddsen:
Herra forseti. Efni þessarar till. er það, að Alþ. feli ríkisstj. að hlutast til um, að ekki verði af gjaldeyrisástæðum skortur á varahlutum í vélar og nauðsynlegustu verkfærum og áhöldum til landbúnaðar og sjávarútvegs. Vafalaust er brýn þörf á því að greiða hér betur úr, en verið hefur til þessara tveggja höfuðatvinnuvega þjóðarinnar. En þriðji höfuðatvinnuvegurinn er iðnaðurinn, og er vissulega ekki vanþörf á því að nefna hann og hans þarfir einnig í þessu sambandi. Það er talið, að nú sé svo komið, að um þriðjungur allra landsmanna hafi framfæri sitt af iðnaði, ýmist verksmiðjuiðnaði eða handiðnaði, og vil ég beina því sérstaklega til þeirrar n., sem fær þetta mál til meðferðar, að bætt sé í till. þessari þriðju atvinnugrein, iðnaðinum, þannig að áskorunin til ríkisstj. gildi einnig um þann atvinnuveg eins og landbúnað og sjávarútveg.
Í till. er gert ráð fyrir, að um innflutningsþörfina verði haft samráð við Búnaðarfélag Íslands og Fiskifélag Íslands. Varðandi iðnaðinn sýnist mér að komi þá aðallega þrír aðilar til greina, Landssamband iðnaðarmanna, Félag íslenzkra iðnrekenda og Iðnaðarmálastofnun Íslands.
Þessum aths. vildi ég koma á framfæri og beina því til hv. n., sem fær málið til meðferðar.