29.10.1958
Sameinað þing: 6. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 179 í D-deild Alþingistíðinda. (2073)

19. mál, Ungverjalandsmálið

Forseti (EmJ):

Út af þeim orðum, sem hv. flm. till. beindi til mín um starfshætti utanrmn., þá get ég náttúrlega engar upplýsingar gefið honum um það.

Ég vil vænta þess, að hv. utanrmn. starfi eins og aðrar nefndir. Á síðasta þingi starfaði hún ekki, svo að ég þori engu að spá um það, hvernig hennar starf muni verða á næstunni, en fyrir fram vil ég alls ekki gera því skóna, að hv. nefnd starfi ekki. Meira get ég ekki sagt.

Það voru á síðasta þingi afgreidd frá nefndinni tvö mál, sem ekki höfðu verið tekin fyrir, ef ég man rétt, í nefndinni.