14.05.1959
Sameinað þing: 52. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 290 í D-deild Alþingistíðinda. (2229)

169. mál, framkvæmdir í raforkumálum

Eysteinn Jónsson:

Ég hef nú minnzt á það, sem ég ætlaði að minnast á, við hæstv. forseta utan fundar, en ég vil gera það aftur nú, vegna þess að ég sé, að það er ætlunin að breyta dagskránni og taka inn á hana nýtt mál. Vildi ég fara fram á það, að hæstv. forseti sæi sér fært að taka líka á dagskrána till. til þál. um raforkumál, þar sem bætt verður á dagskrána á annað borð. Ég hef orðið var við það, að hæstv. forseti er tregur til að bæta á dagskrá, en vildi þó mjög eindregið fara þess á leit, að hann sæi sér þetta fært, fyrst hann breytir nú dagskránni.