12.11.1958
Sameinað þing: 9. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 293 í D-deild Alþingistíðinda. (2235)
37. mál, hafnargerðir o. fl.
Fyrirspyrjandi (Ásgeir Sigurðsson):
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir þær upplýsingar, sem hann gaf. En án þess að ég á nokkurn hátt vantreysti þessum mönnum, sem til þess hafa verið valdir að vera í ráðum með vitamálastjóra um rannsókn í þessu alvarlega og mikilsverða máli, þá langar mig til þess að skjóta því inn, að mér vitanlega er enginn siglingafróður maður í þessari atvinnutækjanefnd. Það getur verið misskilningur. Ef svo er, þá tel ég, að málinu sé betur borgið. En ég teldi, að það væri alveg bráðnauðsynlegt, að í sambandi við rannsóknir á nýjum hafnarstæðum á landinu væri þar siglingafróður maður og maður, sem væri vel kunnugur staðháttum á Íslandi. Enda þótt mér sé málið skylt, þar sem ég hef siglt manna lengst hér við land, meðfram ströndum Íslands, þá er það ekki svo að skilja, að ég sé að reyna að koma sjálfum mér í þessa nefnd. Það eru margir fleiri, sem eru mjög vanir og hæfir til þess. En ég teldi það mikið öryggi, að í n. þessari væri með vitamálastjóra siglingafróður maður.
Ég vil undirstrika það, um leið og ég vil þakka ráðh. fyrir, að hann gat þess, að rannsókn ætti að fara fram á botnlagi og fleiru á ýmsum stöðum, sem til greina gætu komið sem hafnir eða hafnarstæði, að það er mitt álit, að víða eru á Íslandi betri hafnarstæði, en við erum nú að reyna að gera að höfnum og notuð eru í bili, en mundu fljótlega hverfa í skuggann, ef þær hafnir væru byggðar eða gerðar á þeim stöðum, sem ég tel bezt og heppilegast að gera þær víðs vegar á landinu og er sameiginlegt álit okkar margra siglingamanna, sem siglt höfum mikið hér við land. — Vil ég svo þakka hæstv. ráðh. fyrir upplýsingarnar.