29.01.1959
Neðri deild: 66. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 368 í B-deild Alþingistíðinda. (230)

87. mál, niðurfærsla verðlags og launa o. fl.

Eysteinn Jónsson:

Þar sem ég tel heildarstefnu núverandi stjórnarflokka í efnahagsmálum þannig, að svo miklu leyti sem hún er kunn orðin, að ég vil enga ábyrgð á henni bera, og frv. þetta ekki þannig úr garði gert, að það tryggi jafnrétti stétta, mun ég ekki greiða atkv. með því. En þar eð meginatriði frv. er þó að gera tilraun til að færa til baka hækkanir, sem andstæðingar fyrrv. ríkisstj. knúðu fram á s. l. sumri, mun ég ekki bregða fæti fyrir frv. og greiði því ekki atkv. Þessi er afstaða okkar framsóknarmanna í hv. deild.