19.12.1958
Efri deild: 41. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1974 í B-deild Alþingistíðinda. (2437)

Þinghé - árnaðaróskir

forseti (BSt):

Þá er dagskrá þessa fundar lokið. Um næsta fund get ég ekkert sagt eða boðað, en ég tel alveg víst, að eftir sé að halda fund hér í deildinni fyrir jól. Mér virðist, að a.m.k. eitt mál, sem hefur ekki enn komið fram í þinginu, þurfi að afgreiðast sem lög eftir venju, þar sem engar líkur eru til, að fjárlög verði afgreidd fyrir áramótin. Þó að mér virðist því, að tími væri nú kominn til að taka jólafrí, mun ég fresta því að óska hv. þm. deildarinnar gleðilegra jóla að sinni, því að ég tel víst, að við sjáumst hér fyrir jólin.