20.03.1959
Efri deild: 92. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1978 í B-deild Alþingistíðinda. (2454)

Þinghé - árnaðaróskir

Jóhann Jósefsson:

Herra forseti. Ég ætla mig mega mæla fyrir hönd allra hv. dm., þegar ég þakka hæstv. forseta fyrir góðar páskaóskir og fyrir góðar óskir til þeirra manna, sem eiga langan veg að sækja til að ná heimilum sínum, og vil fyrir hönd hv. dm. færa hæstv. forseta okkar beztu óskir fyrir hann og hans fjölskyldu hvað páskahátíðina snertir og vona, að við hittumst heilir að páskum liðnum hér undir stjórn hæstv. forseta.