13.05.1959
Neðri deild: 128. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1982 í B-deild Alþingistíðinda. (2470)

Starfslok deilda

Bjarni Benediktsson:

Herra forseti. Ég vil í nafni dm., — og veit ég, að ég mæli þar fyrir munn allra, — þakka hæstv. forseta fyrir mjög ánægjulegt samstarf á þessu þingi, sem nú er að ljúka, og prýðilega og réttláta fundarstjórn í smáu sem stóru. Ég vil biðja þm. að standa upp til þess að staðfesta þakkir okkar allra honum til handa og óska honum velfarnaðar og hans fjölskyldu. — (Dm. risu úr sætum.)