24.02.1959
Efri deild: 74. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 465 í B-deild Alþingistíðinda. (302)

115. mál, ríkisreikningar

Utanr.- og fjmrh. (Guðmundur Í. Guðmundsson):

Herra forseti. Frv. þetta er samið samkvæmt ríkisreikningnum fyrir árið 1956. Sé ég ekki ástæðu til að ræða málið sérstaklega við þessa 1. umr., enda hefur það ekki verið venja, þegar ríkisreikningurinn hefur komið til 1. umr., og læt ég nægja að leggja til, að málinu verði vísað til 2. umr. og fjhn.