27.02.1959
Efri deild: 76. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 506 í B-deild Alþingistíðinda. (345)

103. mál, skattar og gjöld til sveitarsjóða

Forseti (BSt):

Sem stendur hafa ekki fleiri kvatt sér hljóðs. En bæði af þeim ástæðum, sem hv. þm. V-Sk. tók hér fram og líka og ekki síður sökum þess, að deildin er fremur fámenn nú, þ. á m. vantar hér einn af hv. nefndarmönnum í þeirri nefnd, sem um þetta mál hefur fjallað, þá þykir mér rétt að verða við þeim tilmælum að fresta umræðu nú, en vænti þá, að hv. nefnd taki þessar till. sem fyrst til athugunar, því að vel getur verið, að málið verði aftur á dagskrá á mánudag. Umr. er þá frestað og málið tekið út af dagskrá.