23.10.1958
Efri deild: 8. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 40 í B-deild Alþingistíðinda. (36)

4. mál, bifreiðaskattur o. fl.

Frsm. (Eggert Þorsteinsson):

Herra forseti. Fjhn. hefur rætt frv., sem er endurtekning á því, sem gert hefur verið í þessum málum á undanförnum þingum og orðið sammála um að mæla með samþykkt þess einróma. Fjarstaddur afgreiðslu málsins í n. var hv. þm. Vestm., Jóhann Jósefsson. N. mælir sem sagt með samþykkt frv.