16.04.1959
Neðri deild: 109. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 871 í B-deild Alþingistíðinda. (555)

122. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. (Skúli Guðmundsson):

Út af þessu síðasta, sem hv. 5. þm. Reykv. sagði, vil ég benda á, að við erum því aðeins sammála um þetta, að hann sé mér sammála um, að samlögin hafi verið skattskyld áður eftir eldri lögum, vegna þess að það er alveg ótvírætt, eins og lagagreinin er orðuð núna, að þau eru skattskyld nú.