22.04.1959
Efri deild: 106. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 878 í B-deild Alþingistíðinda. (567)
122. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Friðjón Þórðarson:
Herra forseti. Það hefur verið ákveðið að taka 1. mál út af dagskrá, eins og hv. þdm. hafa nú heyrt og er sennilega ekkert við það að athuga, því að það þarf trúlega athugunar við. En á það vil ég benda, að þó að þetta mál sé tekið út af dagskrá nú í dag, þá ber brýna nauðsyn til þess að hraða því, þ. e. a. s. það þarf að liggja fyrir núna sem allra fyrst, — og það hefði fyrir löngu átt að vera búið að ganga frá því, — hvort skattalögunum verður breytt á þessu þingi og þá hvernig. Það eru mjög fráleit vinnubrögð af hv. Alþingi að efna til breyt. á skattalögunum svo að segja á hverju þingi, velta þeim frv. á undan sér fram að þinglokum á vori og halda á þann hátt skattanefndum víðs vegar um landið algerlega verklausum. Við vitum, að það er langþægilegast fyrir skattanefndir að vinna að þessum málum seinni hluta vetrar, en mjög erfitt, þegar vorannir eru byrjaðar. — Þetta vildi ég einungis benda á og hvað sem við gerum í þessu máli, þá verðum við að taka ákvörðun í því sem allra fyrst.