04.11.1958
Neðri deild: 15. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í B-deild Alþingistíðinda. (59)

3. mál, tollskrá o. fl.

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Þetta mál er komið frá hv. Ed. Það fjallar um framlenging nokkurra lagaákvæða varðandi álag á tolla. En það er að efni til nákvæmlega eins og þau lög, sem nú gilda um þetta efni. Sé ég því ekki ástæðu til þess að rekja það í einstökum atriðum, en legg til, að málinu verði vísað til hv. fjhn. að lokinni þessari umr.