12.05.1959
Neðri deild: 125. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 901 í B-deild Alþingistíðinda. (620)

122. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Forseti (EOl):

Ég hef gert ráðstafanir til þess að reyna að ná í hæstv. fjmrh., en það virðist ekki bera árangur enn þá og ef ekki liggur sérstök ósk fyrir um það, þá mun ég nú ganga til þess fyrst að bera upp þá till., sem fram hefur komið um, að málinu yrði vísað til fjhn. og nokkurt hlé gert seinna á fundinum, svo að hún geti starfað. En ella, ef sú till. er felld, þá verður haldið áfram með afgreiðslu málsins. Það er enginn á mælendaskrá.