04.05.1959
Neðri deild: 121. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 987 í B-deild Alþingistíðinda. (665)
90. mál, útflutningssjóður o. fl.
Halldór E. Sigurðsson:
Herra forseti. Ég hafði ekki hugsað mér að fara út í almennar umræður um fjárhagsmál, eins og hv. 1. þm. Rang. (IngJ) gerði. — Hann taldi það mjög hæpna stefnu, sem hefði komið fram hjá mér, er ég lýsti þeirri skoðun minni, að stefna sú, sem var tekin hér í efnahagsmálum í fyrravor, hefði verið rétt og ég get endurtekið það.
Þessi hv. þm. taldi, að það væri mjög hæpið að hækka vöruverð almennt. Hann hefur þó, þessi hv. þm., tekið þátt í því að breyta genginu, eins og gert var 1950 og mun það hafa komið á vörur almennt, svo að hann hefur ekki gengið skemmra í slíkum almennum ráðstöfunum en ég. Og ég dreg það mjög í efa, að það sé stefna hans og hans flokks að ganga þar skemmra en mér finnst eðlilegt að ganga. Hann veit það líka vel, hv. þm., að þó að ekki sé farið inn á þessa leið, þá eru bifreiðar með aðra skatta og slíkt, sem mismunar verði á þeim mjög frá því, sem er um almennar vörur í landinu. Þær eru á miklu hærri leyfisgjöldum og tollum, en vörur almennt, svo að þess vegna er það bil alveg nóg, þó að ekki sé haldið áfram á þeirri braut, — ekki sízt þegar hv. þm. er mér sammála um það, að þetta séu tæki, sem landsmönnum sé þörf á að eignast og þurfi að gæta varúðar við að gera svo dýr, að það geti ekki nema hátekjumenn eignazt bifreiðar.
Þá sagði hv. þm., að það væri vel sloppið, að ekki skyldu hafa orðið neinar skattahækkanir í sambandi við afgreiðslu fjárl. og það hefði verið vel á málum haldið í sambandi við afgreiðslu fjárhagsmálanna frá því, sem hefði mátt búast við.
Þessi hv. þm. var líka að tala um hækkun á vísitölu og annað því um líkt. Það er nú búið að minna á það svo oft áður, að þeir sjálfstæðismenn virtust ekki hafa þá skoðun hér áður fyrr, að þörf væri á því að halda kaupgjaldi í skefjum eða vísitölu, þó að þeir hafi fengið áhuga fyrir því nú. Á það má minna í sambandi við afgreiðslu fjárl. og fjárhagsmála á þessu ári, að almennt kaupgjald í landinu hefur verið lækkað um 13,4%, og eru það nú nokkrar álögur á almenning líka. Enn fremur vita það allir, sem vilja horfa á afgreiðslu fjárl., eins og hún raunverulega er, að þeim er krækt saman á mjög hæpinn hátt, að ekki sé meira sagt. Í tekjuáætlun voru teknar fyrningar, sem fyrrv. ríkisstj. skildi eftir, svo að ég er sannfærður um, að ef það félli nú í hlut þessa hv. þm. t. d. að verða fjmrh., sem ég er nú ekki að spá, þegar næstu fjárl. yrðu sett saman, þá mundi hann ekki vilja eigna sér allt af þeim nýju tekjuliðum, sem hann yrði að afla til þess að koma fjárlögum saman, þó að ekkert breyttist frá því, sem nú er. Þess vegna held ég, að það eigi að tala varlega um ábyrgð og að það hafi verið komizt hjá því að leggja á nýjar álögur og annað því um líkt í sambandi við afgreiðslu þessara fjárl., því að hún er fyrst og fremst byggð á því, sem eftir var skilið af þeim, sem frá fóru, og svo hefur enn fremur verið aflað tekna með niðurskurði á verklegum framkvæmdum eða lækkuð gjöld með niðurskurði á verklegum framkvæmdum og svo með nýjum sköttum, eins og t. d. af tóbaki, sem er orðið almenn neyzluvara.
En um þetta er það að segja, að hér er um lítið fjárhagsmál að ræða, eða sem svarar 2–3 millj., ef reiknað væri með því, að þetta hefði engin önnur áhrif. En ég lýsti því hér áðan, að það er alveg vitanlegt, að ef á að fara svo langt í þessum álögum sem hér er reiknað með, þá hlýtur það að draga úr sölu bifreiða, svo að það eru allar líkur til þess, að tekjur útflutningssjóðs og ríkissjóðs yrðu á engan hátt skertar, þó að þessi leið yrði farin, sem við bendum hér á. Með því yrði þeim stéttum, sem hér eru sérstaklega bornar fyrir brjósti, sýnd venjuleg sanngirni, þær yrðu settar á borð með almenningi í landinu, og er ástæðulaust að fara að hafa þær í sérflokki, svo sem gert var við bændurna við afgreiðslu á niðurfærslulögunum í vetur. En ef hv. l. þm. Rang. vill endilega halda áfram útfærslu á þeirri braut, þá gæti hann fylgt frv., eins og það er, en ef hann vill stöðva þar við, þá er eðlilegt að fylgja þessari brtt.