13.05.1959
Sameinað þing: 50. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 999 í B-deild Alþingistíðinda. (691)

114. mál, fjáraukalög 1956

Frsm. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Fjvn. hefur yfirfarið frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1956, sem til nefndarinnar var vísað. Frv. er samið í samræmi við till. yfirskoðunarmanna ríkisreikninga, og er í frv. leitað heimildar fyrir öllum þeim greiðslum, sem eru umfram fjárlagaheimild fyrir það ár. Fjvn. hefur ekkert fundið við frv. að athuga og leggur því til, að það verði samþykkt.