29.12.1958
Efri deild: 43. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1011 í B-deild Alþingistíðinda. (730)

73. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði

Forseti (BSt):

Ég er ekki alveg viss um það, að till., eins og hún lá fyrir, hefði verið samþykkt svona umræðulaust á Alþ., og vitanlega gat Alþ. vænzt þess, að það tæki við ríkisstj. fljótlega og ég býst við, að margir hefðu litið svo á, að málið ætti að bíða eftir því. Ég hygg því, að orsökin til þess, að málið er ekki fyrr afgreitt en í dag, sé einmitt sú, að þessi brtt. kom fram.