16.10.1958
Neðri deild: 4. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 48 í B-deild Alþingistíðinda. (86)

2. mál, innheimta ýmis gjöld með viðauka

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Undanfarið hafa verið innheimtir viðaukar á nokkur gjöld, sem greinir í þessu frv. Nú er það tillaga, að þessir viðaukar verði framlengdir jafnháir og þeir hafa verið. Ég sé ekki ástæðu til þess að hafa fyrir þessu lengri framsögu, en óska eftir, að málinu verði vísað til hv. fjhn.