14.08.1959
Efri deild: 12. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 464 í B-deild Alþingistíðinda. (161)

4. mál, almannatryggingar

Bernharð Stefánsson:

Herra forseti. Ég vildi gjarnan stuðla að því, að þetta frv. næði fram að ganga. En ég lít svo á, að til þess að svo megi verða, þurfi fundir d. að vera eftir næstu helgi eða a.m.k. á morgun og í því trausti, að málið fái, ef það verður tekið fyrir nú, fullkomlega þinglega meðferð, því verði ekki flaustrað af, segi ég já.