27.07.1959
Sameinað þing: 3. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 566 í B-deild Alþingistíðinda. (313)

Varamenn taka þingsæti

Frsm. (Þorvaldur G. Kristjánsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haft til meðferðar kjörbréf Tómasar Árnasonar fulltrúa í utanrrn., 1. varaþm. N-M. Nefndin hefur athugað kjörbréfið og leggur til, að kosningin verði tekin gild og kjörbréfið verði samþykkt.