12.08.1959
Sameinað þing: 10. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 567 í B-deild Alþingistíðinda. (319)

Varamenn taka þingsæti

Frsm. (Þorvaldur G. Kristjánsson):

Herra forseti. Fyrir kjörbréfanefnd hefur legið kjörbréf Stefáns B. Björnssonar bónda, Berunesi við Reyðarfjörð, sem fyrsta varaþingmanns fyrir Suður-Múlasýslu.

N. hefur athugað kjörbréfið og ekkert fundið við það athugavert og leggur því til, að kosningin verði tekin gild og kjörbréfið verði samþykkt.