13.08.1959
Sameinað þing: 11. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 568 í B-deild Alþingistíðinda. (322)

Varamenn taka þingsæti

Frsm. (Þorvaldur G. Kristjánsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur tekið fyrir kjörbréf Ólafs Björnssonar prófessors, Aragötu b, Reykjavík, sem 1. varaþm. Sjálfstfl. í Reykjavíkurkjördæmi. N. hefur athugað kjörbréfið og hefur ekki fundið neitt athugavert við það og leggur því til, að kosningin verði tekin gild og kjörbréfið verði samþykkt.