14.08.1959
Efri deild: 13. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 575 í B-deild Alþingistíðinda. (325)

Starfslok deilda

forseti (EggÞ):

Ég verð að líta svo á, að þetta muni síðasti deildarfundurinn. Ef annað kemur upp á teningnum, þá verður að sjálfsögðu boðað til annars deildarfundar. Þar sem þingslit hafa verið boðuð á morgun og hv. Nd. hefur lokið störfum, verður að líta svo á, að þetta sé síðasti fundur þessarar hv. d. Ég vil nota tækifærið til þess að þakka hv. þdm. gott samstarf við mig sem forseta þessarar d. og sér í lagi þeim, sem ég hef orðið að leita til um tilsögn í mínu starfi hér, fyrir sérstaka þolinmæði við það að aðstoða mig í þessu starfi. Sömuleiðis þakka ég þingskrifurum og starfsmönnum þingsins fyrir ágætt samstarf á þessu þingi. Að svo mæltu óska ég þdm. öllum góðrar heimferðar og góðrar heimkomu.