04.12.1959
Neðri deild: 12. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 194 í B-deild Alþingistíðinda. (106)
16. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði 1960
Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Fyrsta spurning hv. 6. þm. Sunnl. (KGuðj) er á þá leið, hvort ég telji ekki þörf neinna lagasetninga til að tryggja framleiðsluna á næstu tveim mánuðum, sem þinghlé verði. Það var alveg óþarfi fyrir þennan hv. þm. að fresta þessari spurningu í gær, því að hann hefði getað beint henni, sem eðlilegt var, ekki til fjmrh., heldur til sjútvmrh. En ég get upplýst hann um það, að í fyrra var í þinghléi samið um þessi mál, um útgerðina, og síðan staðfest á eftir af Alþingi.
Önnur spurningin var á þá leið, hvort rétt mundi, að vanta muni 250 millj. kr. fyrir ríkissjóð eða útflutningssjóð á næsta ári. Ég er búinn að svara þessari fyrirspurn þegar þrisvar sinnum á Alþingi nú og tel ekki ástæðu til að gera það einu sinni enn.
Í sambandi við ummæli hans um það, að ég hafi lýst því yfir, að fjárlagafrv., sem lagt hefur verið fyrir og samið var undir handleiðslu fyrrv. hæstv. fjmrh., sé gagnslaust og marklaust plagg, þá er þessi fullyrðing hv. þm. á hans eigin ábyrgð og staðlausir stafir. Þetta frv. er vel undirbúið og á alla lund samið með svipuðum hætti og fjárlagafrv. eru. Ástæðan til þess, að ég tel nauðsyn á að semja nýtt frv., eru þær breytingar, sem ég hef þegar getíð um, á fjármála- og efnahagskerfinu, sem fyrir dyrum standa.
Þriðju spurningunni hef ég svarað a.m.k. einu sinni í dag og tel ekki ástæðu til að vera að endurtaka það.
Spurningarnar allar eru sem sagt gersamlega ástæðulausar eða út í hött, og mig undrar það, að hv. þm. skuli vera nú að endurtaka þetta, sem hann allt saman er búinn að fá upplýsingar um áður.
En hv. þm. vill meina, að ég sýni Alþingi óvirðingu með því að hafa ekki 1. umr. fjárlaganna nú, og deilir mjög á þessi vinnubrögð. Ég verð að segja, að mér finnst það tæpast fara þessum hv. þm. vel að vera með ákúrur í garð annarra um vinnubrögð og meðferð fjárlaga. Þessi hv. þm. var valin formaður fjvn. á fyrsta þingi, eftir að vinstri stjórnin var mynduð, haustíð 1956. Hann bar því ásamt fjmrh. þáverandi, Eysteini Jónssyni, fyrst og fremst ábyrgð á gangi þeirra mála. Það fórst honum úr hendi með þeim endemum, að í rúma fjóra mánuði lá fjárlagafrv. í fjvn. Ég veit ekki til þess, að í annan tíma í sögu þingsins hafi það dregizt jafnlengi að fá afgreiðslu á fjárlagafrv. út úr nefnd. Og þó að fyrrv. fjmrh. beri að sjálfsögðu og ríkisstj. öll mjög mikla ábyrgð á þessu, þá er ábyrgð á þessum vinnubrögðum ekki sízt á herðum hv. þingmanns, sem var á þeim tíma formaður nefndarinnar og átti að hafa forustuna um vinnubrögð hennar.