25.05.1960
Neðri deild: 88. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2828 í B-deild Alþingistíðinda. (1064)
112. mál, útsvör
Forseti (JóhH):
Það eru þrír hv. þm. á mælendaskrá og kynnu að verða fleiri. Nú hefur jafnan verið heldur hlífzt við því að halda þingfundi á venjulegum fundartímum þingflokkanna, en frá þessu verður að gera frávik, þegar komið er svo mjög að þingslitum sem nú er. Það er þess vegna ákveðið, að fundinum verði frestað nú og fundurinn haldi áfram kl. 5, og þá jafnframt í trausti þess, að þingflokkarnir geti notað tímann milli 4 og 5 til sinna fundarhalda, sem venjulega hafa verið á seinni tíma. — Fundinum er frestað til klukkan 5. — [Fundarhlé.]