30.03.1960
Neðri deild: 58. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3063 í B-deild Alþingistíðinda. (1230)

73. mál, sala lands í Vestmannaeyjum í eigu ríkisins

Guðlaugur Gíslason:

Herra forseti. Ég vildi leyfa mér að þakka hv. landbn. fyrir afstöðuna til málsins og meðmæli hennar með frv. Ég vil taka það fram, að ég get mjög vel fellt mig við þær brtt., sem fram koma frá n. á þskj. 230, og tel þær frekar til bóta en hitt.