02.12.1959
Efri deild: 8. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 251 í B-deild Alþingistíðinda. (135)
30. mál, bráðabirgðabreyting og framlenging nokkurra laga
Forseti (SÓÓ):
Þá hafa ekki fleiri kvatt sér hljóðs. (Gripið fram í.) Er till. um að vísa tillögunni til fjhn.? Það er nú ekki venja að vísa brtt. beint til n., en það yrði þá að bera þessa till. upp þannig að vísa málinu ásamt brtt. til n. að nýju. (Gripið fram í.) Tilmæli þm. voru þau að vísa brtt. til fjhn. Ég vil verða við þessari ósk hv. þm. og bera það undir d., hvort hún vill fresta umr. um málið núna og vísa því ásamt þessari brtt. til fjhn. Þeir hv. þdm., sem samþykkja það, geri svo vel að rétta upp hönd.