23.05.1960
Neðri deild: 86. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3135 í B-deild Alþingistíðinda. (1433)

64. mál, dýralæknar

Frsm. (Benedikt Gröndal):

Herra forseti. Frv. þetta er komið frá hv. Ed. og var þar afgreitt einróma án breytingar. Það er þess efnis að fjölga dýralæknissvæðum á Vesturlandi, í Borgarfjarðar-, Mýra- og Snæfellsneshluta landsins. Málið hefur verið til meðferðar í landbn. Nd., og eru allir nm. sammála um að mæla með því óbreyttu, eins og það liggur fyrir.