28.11.1959
Efri deild: 4. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3444 í B-deild Alþingistíðinda. (1661)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir ofl.

Forseti (SÓÓ):

Þessar umræður, sem hafa allar farið fram utan dagskrár, bráðum í klukkutíma, hafa farið nokkuð vítt út og ýmis mál blandazt inn í það, sem ekki var gert ráð fyrir í upphafi að mundi verða rætt um utan dagskrár. Nú eru þrír hv. þm. á mælendaskrá, og ég vil mælast til þess við þá, að þeir stytti mál sitt, eftir því sem hægt er, og haldi sig við það efni, sem byrjað var að ræða.