30.11.1959
Sameinað þing: 4. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3505 í B-deild Alþingistíðinda. (1686)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir ofl.

Sjútvmrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Út af fsp. hv. 7. þm. Reykv. (ÞÞ) get ég aðeins upplýst það, að ríkisstj. hefur haft þessi mál til meðferðar og mun freista að reyna að ráða fram úr þeim á þann veg, sem húsbyggjendum mætti að gagni koma. En á þessu stigi get ég ekki fullyrt neitt um það, hvenær þær umþenkingar munu bera árangur.