22.02.1960
Neðri deild: 34. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3568 í B-deild Alþingistíðinda. (1744)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir ofl.
Sjútvmrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Það eru aðeins nokkur orð út af fyrri ræðu hv. 1. þm. Austf. (EystJ), þar sem hann svo smekklega taldi, að ég hefði verið eitthvað að muldra niður í barminn, sem hann sjálfsagt telur góða og gilda latínu að orða svo, en efnislega var það um boðun þessara funda, sem fram fóru á laugardagsmorguninn. Fundarboðunin var þannig, að ég fól ráðuneytisstjóranum að boða til fundar húsnæðismálastjórnina, stjórn verkamannabústaðasjóðs og stjórn fiskveiðasjóðs. Þessir 3 aðilar áttu allir að boðast til viðræðu um málið. Hv. 3. þm. Reykv. vildi telja, að þessi fundarborð ættu helzt að vera skrifleg og tími og tóm gefast til þess að velta málinu alllengi fyrir sér. Út af fyrir sig má segja kannske, að það hefði ekkert verið óeðlilegt. En tíminn var þarna naumur, og það var ekki annað að gera en kalla þessar stjórnir á fund upp í ráðuneyti þess ráðherra, sem með þessi mál fer, og hafa samráð við þessa aðila þar. Þetta var gert. Það mættu að vísu ekki allir, eins og hér hefur margkomið fram, sem boða átti, en það var mín hugsun og mín fyrirmæli, að allar þessar 3 stjórnir, sem undir mitt ráðuneyti heyra, væru þarna boðaðar.
Ég skal nú ekki fara út í að ræða málið efnislega frekar en áður. Ég tel, að það sé búið. En hv. 3. þm. Reykv. virtist annaðhvort hafa mismælt sig eða hann hefur ekki gert sér grein fyrir breyt. fyllilega, því að mér skildist á honum, að hann teldi, að vextir verkamannabústaðasjóðs, — hann tók það sérstaklega fram, — færu upp í 9%. Það gera þeir ekki. Þeir hækka upp í 6%. Verkamannabústaðasjóður og byggingarsjóður sveitanna hækka úr 3½ upp í 6%. Það er að vísu rétt, að það verður dýrara fyrir lántakendur sjóðanna en áður var. En með hliðsjón af þeirri vaxtahækkun, sem hefur farið fram í landinu, er þetta vissulega ekki óeðlilegt. Vextirnir eru núna 3% undir almennum innlánsvöxtum í sparisjóðum. Þeir eru 6% í útláni þessara stofnana, en almennir innlánsvextir eiga að vera 9%. Vextir sjóðsins eru þess vegna 3% lægri. Þegar bezt var hlutfallið á milli innlánsvaxta og vaxtakjaranna í þessum sjóði, var það eins og hv. þm. nefndi, vextirnir 2½% á móti innlánsvöxtum 4–5% , þannig að þeir voru þá 1½–2½% lægri, en nú eru þeir 3% lægri.
Annars skal ég ekki orðlengja þetta frekar. Það má kannske segja, að tíminn, sem þessum sjóðsstjórnum hafi verið gefinn til þess að segja sitt álit um málið, hafi verið naumur. En það var talið eðlilegt, að tilkynning um þetta yrði gefin og ákvörðun tekin fyrir mánudag, til þess að allt gæti þetta komið út í heild, áður en bankastarfsemin á mánudag byrjaði.