29.01.1960
Efri deild: 11. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 371 í B-deild Alþingistíðinda. (179)
43. mál, tollafgreiðslustöðvun
Hermann Jónasson:
Herra forseti. Það hefur verið leitað samkomulags um það við þingmenn Framsfl. að afgreiða þetta mál án tafar, og það hefur orðið samkomulag um, að það skyldi gert, vegna þess að við teljum eðlilegt, að ekki verði töf á afgreiðslu þessa máls. Við munum því verða við óskum hæstv. fjmrh. um að greiða fyrir því, að málið verði afgreitt hér á stuttum tíma.