14.03.1960
Sameinað þing: 22. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3644 í B-deild Alþingistíðinda. (1820)

Varamenn taka þingsæti, rannsókn kjörbréfa

Forseti (FS):

Frá forseta Nd. hefur borizt svolátandi bréf:

„Reykjavík, 12. marz 1960. — Mér hefur í dag borizt svo hljóðandi bréf frá Jónasi Péturssyni, 3. þm. Austf.:

„Þar sem mér er nauðsynlegt vegna aðkallandi starfa hjá tilraunabúinu á Skriðuklaustri, sem ég hef stjórn á, að fara af þingi næstu vikur, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþ. að fara þess á leit, að varamaður minn, Einar Sigurðsson útgerðarmaður, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu Alþingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Jóhann Hafstein, forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Með bréfi þessu fylgir kjörbréf til handa Einari Sigurðssyni útgerðarmanni sem varamanni í Austurlandskjördæmi. Hlé verður nú gert á fundinum í allt að tíu mínútur, meðan kjörbréfanefnd rannsakar kjörbréfið. — [Fundarhlé.]