23.03.1960
Sameinað þing: 28. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3649 í B-deild Alþingistíðinda. (1838)

Varamenn taka þingsæti, rannsókn kjörbréfa

Forseti (SÁ):

Ég verð að fallast á, að það sé ekki ástæða til þess að fresta að taka ákvörðun um þetta kjörbréf. Þeir ágætu menn, sem skipa landskjörstjórn, hafa einróma gefið herra Pétri Péturssyni forstjóra kjörbréf, og kjörbréfanefnd Alþ, hefur líka einróma mælt með, að kjörbréfið væri tekið gilt. Ég vil því biðja þá hv. alþm., sem vilja fallast á að taka þetta kjörbréf gilt, að rétta upp hönd.