07.12.1959
Sameinað þing: 8. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3669 í B-deild Alþingistíðinda. (1950)

Þingfrestun og setning þings að nýju

Forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Forseti Íslands hefur í dag gefið út svo hljóðandi bréf:

„Forseti Íslands gerir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsrh. umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 80. löggjafarþings, frá 7. des. 1959, enda verði þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 28. jan. 1960.

Gert í Reykjavík, 7. des. 1959.

Ásgeir Ásgeirsson.

Ólafur Thors. Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

Samkvæmt þessu umboði lýsi ég hér með yfir því, að fundum Alþingis, 80. löggjafarþings, er frestað frá deginum í dag, og verður það kvatt til fundar á ný eigi síðar en 28. jan. 1960.

Ég leyfi mér að árna hæstv. forseta og hv. alþm. og starfsmönnum Alþingis gleðilegra jóla og farsæls nýárs.