28.01.1960
Sameinað þing: 9. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3669 í B-deild Alþingistíðinda. (1952)

Þingfrestun og setning þings að nýju

forsrh. (Ólafur Thors):

Hinn 20. jan. 1960 var gefið út svo hljóðandi forsetabréf:

„Forseti Íslands gerir kunnugt:

Ég hef ákveðið samkvæmt till. forsrh., að Alþingi, 80. löggjafarþing, skuli koma saman til framhaldsfundar fimmtudaginn 28. jan. 1960, kl. 13.30.

Gert í Reykjavík, 20. jan. 1960.

Ásgeir Ásgeirsson.

Ólafur Thors.

Forsetabréf um, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfundar.“

Samkvæmt þessu hefjast nú framhaldsfundir Alþingis. Ég vil leyfa mér að óska hæstv. forseta og hv. alþm. gleðilegs árs og þakka þelm fyrir liðna árið, um leið og ég býð þá alla velkomna til þingstarfa að nýju.