28.01.1960
Sameinað þing: 9. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3670 í B-deild Alþingistíðinda. (1953)

Þingfrestun og setning þings að nýju

Forseti (FS):

Þá er fundur settur í sameinuðu Alþingi. Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. forsrh. góðar óskir hans til mín og annarra hv. alþingismanna. Enn fremur vil ég óska hv. alþm. góðs árs og þakka þeim fyrir liðið ár og býð þá velkomna til Alþingis til starfa að nýju.