03.06.1960
Efri deild: 94. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3672 í B-deild Alþingistíðinda. (1965)

Starfslok deilda

Forseti (SÓÓ):

Ég vil þakka hv. 1. þm. Norðurl. e. fyrir hans hlýju orð og góðu óskir í minn garð og fjölskyldu minnar og einnig hv. þdm. fyrir að taka undir þær óskir. Ég vil endurtaka óskir mínar til hv. þdm. um góða líðan og gott og gleðilegt sumar. Fundi er slitið.