11.02.1960
Neðri deild: 26. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 634 í B-deild Alþingistíðinda. (2002)

48. mál, efnahagsmál

Forseti ( JóhH ):

Nú stendur svo á, að nál. minni hlutanna í fjhn. hefur ekki enn verið útbýtt. Hins vegar er fullt samkomulag um það innan d. að hraða sem mest framgangi þessa máls, og eru því frsm. 1. og 2. minni hl. fjhn. reiðubúnir til þess að gera grein fyrir afstöðu sinni, þó að nál. sé ekki enn útbýtt, og eru þeir næstir á mælendaskrá. Það verður hins vegar nú gert hlé á þessum fundi til klukkan fimm, og þá heldur umræðunni áfram. — [Fundarhlé.]