07.12.1959
Neðri deild: 15. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 95 í C-deild Alþingistíðinda. (2195)

37. mál, verð landbúnaðarafurða

Forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Ég vildi aðeins leyfa mér að fara fram á, að fundinum yrði frestað um klukkutíma, þannig að maður gæti athugað þessar uppástungur, sem fram eru komnar. Ég er nú ekki á þessu stigi málsins reiðubúinn til þess að láta í ljós neina skoðun á, hvort í þessu felst nokkur hugsanleg lausn, en mér finnst, að þetta sé svo mikið og örlagaríkt mál, að rétt sé að fresta fundinum í klukkutíma, svo að betra tóm gefist til að athuga þessa uppástungu, sem fram er komin.